Í gær fór fram lokamótið í púttmótaröð barna-, unglinga- og afreksstarfs, en þetta var 11. mótið frá áramótum. Til að taka þátt í heildarkeppninni þurfti að taka þátt í 6 mótum. Keppt var í alls 8 flokkum. Að loknu púttmótinu var boðið upp á léttar veitingar og verðlaunaafhendingu. Hér fyrir neðan má sjá úrslitin, en einnig hægt að skoða heildarárangur allra keppenda hér.
Fjórir kylfingar mættu í öll ellefu púttmótin í vetur! Það voru þau Anna Júlía, Róbert Leó, Þórunn Margrét og Bjarney Ósk Harðardóttir, sem hefur mætt í öll púttmót síðastliðna þrjá vetur. Geri aðrir betur!
Við þökkum kærlega fyrir þátttökuna í vetur og óskum öllum vinningshöfum til hamingju. Nú má sumarið koma 🙂