Kæru félagar

Með góðu veðri sem markaði upphaf tímabilsins hefur þetta sannarlega verið óvenjuleg, en kærkomin byrjun. Við vorum svo heppin að geta opnað völlinn fyrr en venjulega, og það hefur verið sannkölluð ánægja að sjá svo mörg ykkar aftur á vellinum í góðu formi eftir vetrarhléið.

Vallateymið og kynningar

Allt okkar sumarstarfsfólk er nú komið til starfa og mig langar að kynna ykkur fyrir frábæra vallarteyminu okkar. Á tímabilinu mun ég kynna þau í Vallarstjórahorninu, svo þið getið kynnst fólkinu sem heldur vellinum við og því sem við erum að fást við. Við erum svo lánsöm að vera með sterka blöndu af reyndu starfsfólki, eldri borgurum og sumarstarfsfólki, sem hvert og eitt kemur með einstaka hæfileika, sköpunargáfu og elju í teymið.

Rökun brauta og heilsa grassvarðar

Þið hafið ef til vill tekið eftir því að brautir voru „rakaðar“ á nýjan leik í byrjun þessa mánaðar. Þessi aðferð, sem sum ykkar munið eftir frá síðasta tímabili, gegnir lykilhlutverki í að bæta heilsu grassvarðarins. Með því að greiða, eða raka brautirnar, gefum við loft inn í grassvörðinn, fjarlægjum dauðan hliðarvöxt og minnkum þjöppun á yfirborði. Þetta gerir efri hluta grassvarðarins kleift að dafna, hvetur til lóðrétts vaxtar og bætir sláttargæði, sem skilar sér að lokum í betri brautum.

Eftir rökunina hefur teymið unnið við að fjarlægja steina og sinna viðgerðum á brautum. Þetta er áframhaldandi verkefni sem við munum halda áfram með eftir því sem veður leyfir.

Viðhald glompna

Viðhald glompna er áfram nákvæmt og tímafrekt verkefni. Teymið okkar hefur verið upptekið við þetta tímafreka verkefni; steinafjarlægingu, dýptarmælingar, illgresiseyðingu og almennt útlit – greiða botna og slétta hliðar, skilja eftir skarpar og vel mótaðar brúnir, fjarlægja spor innan og utan gryfja og raða hrífum snyrtilega. Þetta eru aðeins nokkur dæmi um viðhald sem þið munið taka eftir. En það er meira á bak við þetta en virðist við fyrstu sýn, eins og með mörg störf á vellinum. Glompurakarar okkar hafa verið sérstaklega stoltir af framsetningu sinni á tímabilinu. Því miður fá þeir sem ekki eru snemma á fótum ekki alltaf að njóta þess að sjá hversu fallegt þetta er þegar búið er að vinna.

Við biðlum til kylfinga að raka glompur vandlega, afmá öll kylfuför og fótspor og skilja við hrífinu alla í glompunni, þvert á höggstefnu. Með þessu móti hefur hrífan minnst áhrif á leikinn og vinnu vallarstarfsmanna.

Vantar á mynd: Viktor, Hulda, Atli, Ragnar, Mattius, Bensi og Katrín

 

Yfirstandandi verkefni

Vökvun á teigum:
Við munum brátt hefja endurnýjun á fjölda vökvunarhausa á teigum, margir þeirra eru yfir 20 ára gamlir. Þessir hafa orðið fyrir álagi vegna íslenskra aðstæðna og virka ekki lengur sem skyldi. Á meðan á þessu stendur gætuð þið tekið eftir tímabundnum flutningum á teigum. Þegar þessu er lokið munu uppfærslurnar styðja við betri endurheimt grassvarðar og almenna heilsu teiganna.

Rauðgresissvæði:
Þið gætuð séð svæði þar sem leyft er að vaxa hátt rauðgresi. Mig langar að fullvissa ykkur um að þetta séu ekki vanrækt svæði. Við munum stýra þeim með slætti sem hvetur til vaxtar fíngresis sem er leikvænt, en á sama tíma og þykkt og óleikvænt gras er takmarkað. Þetta er langtímaverkefni sem felur í sér viðhald tvisvar á ári til að bæta plöntusamsetningu, stuðla að náttúrulegri sáningu og styrkja rótarkerfi, sem hentar vel fyrir golfvellina. Við munum einnig hvetja til blómstrandi tegunda og fjarlægja óæskilegt illgresi. Þetta styður bæði við leikni og líffræðilegan fjölbreytileika, gerir völlinn sjónrænt aðlaðandi og hentar dýralífinu betur.

Sláttuþjarkar
GKG hefur tekið á móti fleiri sjálfvirkum sláttuvélum í teymið, nú eru Goggi, Guðrún og Rosazza komnar til liðs við okkur. Þessir róbótar munu vinna á Leirdalsbrautum 4, 5, 6, 10, 11 og 12. Vinsamlegast gefið þeim svigrúm til að sinna daglegu viðhaldi. Við erum að vinna að því að kortleggja þessar brautir og skipuleggja vinnu þeirra á næstu vikum, og þökkum við ykkur fyrir skilning á meðan við venjumst nýja „vinnuaflinu“ á þessum brautum.

Kærar þakkir fyrir áframhaldandi stuðning og áhuga á því sem er að gerast á vellinum og hlakka til að halda ykkur upplýstum í gegnum tímabilið og sjá ykkur öll njóta leiksins.

Bestu kveðjur,
Kate Stillwell