Ef þig vantar kvittun fyrir félagsgjaldinu þá er einfalt að sækja það í XPS félagakerfi GKG.

Ferlið er eftirfarandi:

  1. Farðu á https://xpsclubs.is/gkg/registration og skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum
  2. Veldu nafn þitt efst hægra megin, smelltu á örina og veldu “Mínar hreyfingar”
  3. Smelltu á krossinn lengst til vinstri og veldu “Skoða kvittun”
  4. Þá geturðu valið um að senda þér kvittun í tölvupósti eða “Sækja PDF” og prenta út kvittunina.

Sjá myndrænar leiðbeiningar hér fyrir neðan.