Völlurinn lítur vel út og var byrjað að slá brautir nú í morgun í hreint frábæru veðri. Flatirnar voru einnig sleggnar í morgun og er allt að verða í standi fyrir laugardaginn.

Móttökuhúsið okkar gengur ágætlega og lítur vel út eins og sjá má á myndum. Við minnum félagsmenn á sjálfboðaliðsdaginn á fimmtudaginn kl. 17.00. Þar vonumst við til þess að sjá sem flesta því nóg er að gera á vellinum.