Kæru félagar

Núna styttist í sumarið og ekki seinna vænna að koma sér í form.  Við hjá GKG bjóðum upp á æfinganámskeið sem hefjast 21.mars, markmiðið með námskeiðinu er að æfa alla þætti leiksins í formi stöðvaþjálfunar. PGA kennarar frá GKG sjá um námskeiðið og eru til staðar að leiðbeina. Um er að ræða 5 skipti einu sinni í viku og klst í senn, verða einungis 6.000 kr.  Hægt er að velja milli mánudaga og miðvikudaga milli kl 20-22 og fer námskeiðið fram í æfingaaðstöðu GKG í Kórnum Kópavogi.  Fullt er í einhverja hópa nú þegar.

Áhugasamir vinsamlegast senda fyrirspurn á birgirleifur@gkg.is

kveðja

Íþróttasvið GKG