Vetrarvöllur GKG hefur nú verið opnaður. Hann spilast á Mýrinni og eru flögginn fyrir holur vetrarvallarins köflótt (hvít og rauð). Einnig spilast hann af öðrum teigum sem eru sérmerktir. Verður hann opinn í vetur fyrir GKG félaga.
Það skal þó tekið fram að þangað til að frostið kemur þá verður gamli Vífilsstaðavöllurinn opin á sumargrínum, eins lengi og veður leyfir. Tilkynnt verður sérstaklega þegar hann lokar fyrir veturinn. Ef við fáum næturfrost einhverja daga þá eru menn þó beðnir um að spila vetrarvöllin fram að hádegi
Góða skemmtun!
– Vallarstjóri