Viðurkenningar og verðlaun fyrir Kristals mótaröðina afhent í dag

Vegna samkomutakmarkana höfum við ekki getað haft uppskeruhátíð eins og undanfarin ár. En undanfarið hefur aðeins létt til í þeim efnum og var hægt að kalla til verðlaunahafa og veita viðurkenningar. Þetta var öllu lágstemmdara en áður, en góð stund að fagna saman góðum árangri. 

Eftirfarandi kylfingar hlutu viðurkenningar:

Mestu framfarir:
Tekið er tillit til hvort leikið var í mótum eða æfingahringjum. Meira vægi er sett á lækkanir í mótum sem og árangur í mótum.

Frá vinstri: Arnar þjálfari, Gunnar Þór, Gunnlaugur, Karen Lind, Dagur Fannar, Hulda Clara og Ástrós. 

Drengir: Gunnar Þór Heimisson

Lækkaði forgjöfina úr 18,7 í 11,1 eða um  -41% og er stór hluti lækkunar komi úr keppnishringjum. Sigraði í sínum flokki í Meistaramóti GKG.

Stúlkur: Helga Grímsdóttir
Lækkaði forgjöfina úr 31,4 í 17,2 (-14,2) eða um -45% sem er frábær árangur. Helga er ótrúlega dugleg að æfa og spilaði nánast daglega s.l. sumar. Sigraði í sínum flokki í Meistaramóti GKG.

Efnilegust: (mesta bæting í mótum milli ára):
Drengir: Gunnlaugur Árni Sveinsson
Gulli lækkaði forgjöfina úr 4,6 í 2,1 (-54%) og hefur sýnt miklar framfarir undanfarin ár enda fáir ef nokkrir jafn duglegir að æfa og spila en Gulli.
Gulli náði mjög góðum árangri á Unglingamótaröð GSÍ á yngra ári sínu í 15-16 ára flokknum og endaði í 2. sæti í Íslandsmótinu í holukeppni og auk þess tvisvar sinnum í 3. sæti. Hann hafnaði í 4. sæti á stigalistanum í sínum flokki.

Stúlkur: Karen Lind Stefánsdóttir
Karen hefur tekið miklum framförum undanfarin ár og lækkaði forgjöfina úr 11,7 í 7,4 (-34%) milli ára. Hún hafnaði í 5. sæti á stigalista 14 ára og yngri þar sem hún náði tvisvar sinnum verðlaunasæti á tímabilinu. Karen Lind er hörkudugleg og sýnir gott keppnisskap og góða framkomu innan vallar sem utan.

Verðlaun fyrir framúrskarandi árangur (kylfingur ársins):
Piltar: Dagur Fannar Ólafsson
Dagur Fannar átti frábært ár þar sem hann sigraði í þremur mótum á Unglingamótaröð GSÍ í flokki 15-16 ára, þ.á.m. Íslandsmótinu í höggleik. Hann varð síðan stigameistari í sama flokki. Dagur Fannar er mjög hæfileikaríkur og á eftir að vera fastamaður í landsliði haldi hann áfram á sömu braut.

Stúlkur: Hulda Clara Gestsdóttir
Hulda Clara er okkar fremsti kvenkylfingur í GKG en hún tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í holukeppni 17-18 ára stúlkna. Hún hafnaði í 5. sæti stigalista kvenna á seinasta ári þar sem hennar besti árangur á Stigamótaröð GSÍ var 2. sæti
Hulda er komin með +2,5 í forgjöf sem er meðal því allra lægsta hjá konum á Íslandi og lék hún með kvennalandsliðinu sem hafnaði í 8. sæti á EM kvenna í Svíþjóð. Hulda Clara mun hefja háskólanám í Colorado næsta haust.

Hægt er að skoða lista yfir þau sem hlotið hafa viðurkenningar GKG hér.

Veitt voru verðlaun fyrir Kristals mótaröð unglinga.  Hér fyrir neðan er hægt að sjá hverjir náðu verðlaunasætum og einnig árangur allra í mótunum. Þau sem náðu ekki að taka við verðlaunum í gær geta vitjað þeirra á skrifstofutíma á skrifstofu GKG. Við munum veita verðlaun fyrir besta heildarárangur á Floridana mótaröðinni, auk þátttökuverðlauna næsta föstudag 12. mars.

Við óskum öllum verðlaunahöfum innilega til hamingju með árangurinn!

Hér er hægt að skoða heildarúrslit í Kristals mótaröðinni 2020

Vonum að allir haldi áfram að vera dugleg að æfa, það er vor í lofti!

Frá vinstri: Benjamín Snær, Guðjón Frans, Pálmi Freyr

Katrín Hörn og Gunnhildur Hekla

F.v.: Jón Þór, Gulli og Jósef

Karen Lind og Elísabet Sunna

Share This Story, Choose Your Platform!

Go to Top