Búið er að semja um fríspil félagsmanna fyrir sumarið 2007. Sama fyrirkomulag verður á þessum samningum eins og undanfarin ár. Ákveðið var að ganga ekki til samstarfs við Golfklúbbinn Leyni heldur gera árssamning við Golfklúbb Borgarness. Hamarsvöllur mun opna sem 18 holu völlur í sumar og stendur félagsmönnum GKG til boða að leika hann án greiðslu.
Árið 2007 geta meðlimir GKG því leikið án greiðslu hjá eftirfarandi klúbbum:
| GHR – Golfklúbbur Hellu Rangárvöllum, Strandarvöllur | |
| GB – Golfklúbbur Borgarness, Hamarsvöllur | |
| GOS – Golklúbbur Selfoss, Svarfhólsvöllur | |
| GS – Golfklúbbur Suðurnesja, Hólmsvöllur í Leiru |