Mánudaginn 9. maí milli klukkan 16 og 19 verður vinnu og hreinsunnardagur hjá okkur í GKG.
Helstu verkefni dagsins verða:
- Snyrting í kringum skála og bílaplan.
- Hreinsa allt rusl af vellinum og nánasta umhverfis.
- Tyrfing við æfingasvæði, 650 fermetrar.
- Gera nýja vegkanta klára fyrir torf.
- Bera viðarvörn á Pro Shop og sólpall ef veður leyfir.
- Áburður á tré.
- Einnig verður trjáræktarnefndin með verkefni á sínum snærum og stýrir þeim.
Við vonumst eftir því að sjá sem flesta.
Vallarstjóri