Nú er komið að því gott fólk.

Nú vantar okkur aðstoð við að gera völlinn tilbúinn fyrir opnun sem styttist verulega í. Fimmtudaginn 4. maí frá klukkan 16:00 munum við taka höndum saman og klára allnokkur verk sem eftir eru á vellinum okkar. Mæting er í Íþróttamiðstöðina okkar og þar verður útdeilt verkefnum á mannskapinn. Í lok dagsins verður Vignir vertinn okkar með veitingar fyrir þá sem taka þátt í fegrun vallana.
Helstu verkefni eru:
• Vinna við glompur vallarins
• Týna rusl á öllu svæðinu
• Hreinsa til í kringum Íþróttamiðstöð.
• Tyrfa á nokkrum stöðum.
Þeir sem mæta og hjálpa okkur við að klára þessi verkefni munu geta skráð sig á rástíma föstudaginn 5. Maí, völlurinn verður bara opinn fyrir þá sem hjálpa til þann 4 maí. Skráningarblað mun vera hjá verslun GKG.

Þá er það sem margir hafa beðið eftir síðan í haust og er líklega algengasta spurningin á íslandi á vorin. “Hvenar opnar völlurinn?”
Völlurinn mun opna laugardaginn 6. Maí. Klukkan 09:00.

En þá er bara að mæta með GKG hjartað og góða skapið og hjálpa til við að gera svæðið okkar sem glæsilegast fyrir sumarið.

Með sumarkveðju
Vallarstjóri.