Vallarstjóri hefur tekið þá ákvörðun að frá og með mánudeginum 29. október loki Vífilstaðavöllur fyrir veturinn. Því er núna síðasta tækifæri þeirra sem vilja spila inn á sumargrín svona í síðasta skiptið þetta sumarið að koma um helgina og leika sér aðeins.
Frá og með mánudeginum verður því aðeins vetrarvöllurinn opinn og er hann aðeins opinn fyrir félaga í GKG. Spilast hann á því svæði sem Mýrin er á, en á öðrum teigum og grínum.
Takk fyrir golfsumarið!