Kæru félagar,

Nú stefnum við að því að slá öll fyrri met varðandi þátttakendafjölda í lokamóti ársins Bændaglímunni 2017!

Í ljósi þess að Bændaglíman fylltist nánast samdægurs þegar skráning hófst án þess að við auglýstum hana höfum við ákveðið að bæta í betur.

Bændaglíman 2017 verður jafnframt leikin á Mýrinni og verða spilaðir 2 hringir eða 18 holur. Skráning fer fram á golf.is, Bændaglíman 2017 (Mýin). Þátttökugjaldið er eingöngu kr. 3.900 og er innifalinn matur hjá Mulligan … sem sagt gjöf en ekki gjald.

Nánari upplýsingar:

Hin árlega Bændaglíma GKG fer fram laugardaginn 7. október um er að ræða síðasta innanfélagmót ársins og það verður öllu tjaldað til.  Bændur í ár eru Vernharð Þorleifsson betur þekktur sem Venni Páer og Þórhallur Sverrisson (Tóti draumur) þekktastur fyrir leik sinn í íslensku stórmyndinni Íslenski draumurinn.  Þeir ætla að stýra mótinu og sínum liðum til sigurs. Þau í Mulligan sjá um matinn (lambakjöt og bernaise).

 Fyrirkomulag

4 manna texas scramble punktakeppni með fgj.(hámarksforgjöf karla er 36 og kvenna 40, deilt er í 10 í samanlagða leikforgjöf keppenda)

Tvö lið og sigurliðið er það sem er með flestu sameiginlegan punktafjölda,  ef leikar enda jafnir þá fara bændur í bráðabana. Þeir sem spila Mýrina spila tvo hringi (18 holur )

Mæting kl 12.  (Bændur kynntir, farið yfir leikskipulagið og dregið í lið).

Keppnin hefst kl 13 og er ræst á öllum teigum samtímis.

Veitt eru fyrir þann ráshóp sem er með flestu punktana, auk þess verður lengsta drive á 12. bæði fyrir konur og karla á Leirdalnum og 5. á Mýrinni, nándarverðaun verða á öllum par 3 holum

Borðhald hefst um kl 18:00 í skálanum

Verð einungis 3.900 kr á mann (innifalið er maturinn).

Skráning fer fram á golf.is athugið að liðin skipast eftir því hverjir skrá sig saman á rástíma.

Hlökkum til að sjá sem flesta!

Aldurstakmark er 20 ára!!!

Áfram GKG !