Icelandair VITA Peter Salmon Golf mánudagsmótaröðin fór fram í sumar í 12. sinn en fyrsta mótið fór fram 2015. Tólf mót eru venjulega leikin yfir sumarið og telja fjögur bestu punktaskorin í heildarkeppninni. Í ár voru mótin 11 talsins þar sem fyrsta mótið féll niður vegna seinkunar á opnun valla.

Lokastaðan í karlaflokki:

  1. Magnús Helgi Jakobsson 159 (42, 38, 40, 39)
  2. Guðlaugur Stefán Egilsson 157 (35, 41, 45, 36)
  3. Ívar Örn Sigurðarson 151 (39, 41, 36, 35)

Lokastöðuna á stigalista karla er að finna hér.

Lokastaðan í kvennaflokki:

  1. Berglind Stefanía Jónasdóttir 162 (40, 41, 42, 39)
  2. Helga Þórdís Guðmundsdóttir 159 (40, 39, 41, 39)
  3. Ragna Stefanía Pétursdóttir 157 (37, 41, 42, 37)

Lokastöðu á stigalista kvenna er að finna hér.

Innilegar hamingjuóskir Berglind Stefanía og Magnús Helgi!

Alls tóku þátt 63 karlar og 45 konur í mótaröðinni í ár.

Allar upplýsingar um Icelandair VITA Peter Salmon Golf mánudagsmótaröðina er að finna hér.

Við þökkum okkar góða styrktaraðila Icelandair VITA Peter Salmon Golf kærlega fyrir stuðninginn og óskum verðlaunahöfum til hamingju með frábæran árangur! Verðlaunaafhending fer fram eftir Lokamót keppnishalds GKG 5. september.

Á myndinni frá vinstri eru Aggi framkvæmdastjóri GKG, Berglind Stefanía og Ragga Steph formaður mótanefndar GKG.