Heil og sæl

Nú er búið að opna fyrir skráningar á vetraræfingar GKG og er farið í gegnum skráningarkerfið í Nóra, sjá hér: https://gkg.felog.is/. Ef um sérstakar óskir er að ræða varðandi almenna hópa þá er gott að taka það fram í athugsemdareitnum í skráningarferlinu.

Ef nota á frístundastyrk sem tekur gildi á nýju ári þá er réttara að hinkra til 1. janúar með skráninguna, til að geta nýtt styrkinn. Hinsvegar, þá hjálpar það mér mikið upp á hópaskiptingar að fá meldingu um það og senda mér upplýsingar um iðkandann með tölvupósti.

Vetraræfingar barna og unglinga í GKG hefjast 4. janúar, en við minnum á að við erum enn með æfingar seinasta tímabils í gangi fyrir börn fædd 2005 og yngri, til 10. desember.

Almennir hópar hafa val um að æfa tvisvar í viku í Kórnum eða í Íþróttamiðstöð GKG (golfskálanum), eftir búsetu eða æfingatíma sem hentar.

Smelltu hér til að skoða æfingatíma sem eru í boði í vetur, auk annara upplýsinga. Ath. æfingataflan er birt með fyrirvara um breytingar. Hægt er að óska eftir að æfa með næsta aldurshópi ef tími í boði hentar ekki.

Við gerðum breytingar á æfingatímabilinu okkar og verður það frá janúar fram yfir miðjan nóvember (áður nóv-sept). Tímabilið skiptist nú í vetrartímabil (4. jan-11. júní) og sumartímabil (14. júní-18. nóv). Við erum að spila golf fram í október og höfum alltaf í okkar frábæru inniaðstöðu að venda þegar veður eru válynd. Auk þess eru flestir krakkar á kafi í próflestri og jólaundirbúningi, þannig að okkur fannst þetta eðlilegri skipting og betri tími fyrir frítöku.

Æfingagjaldið fyrir vetrartímabilið er kr. 26.500 fyrir almenna hópa og 32.500 fyrir framt./keppnishópa/mfl. U18. Við bætist félagsgjaldið sem gildir allt árið og er það breytilegt eftir aldri. Lægsta gjaldið miðast nú við 12 ára og yngri í stað 10 ára og yngri áður. Félagsaðildin veitir m.a. aðgang að golfvöllum GKG og æfingasvæðum inni og úti. Heildargjöld eru á pari við það sem var á liðnu tímabili. Sjá æfinga- og félagsgjöld hér.

Aldur miðast við fæðingarárið (13 ára miðast við fædd 2008 hvort sem er í jan eða des).

Félagsgjöldin verða keyrð sjálfkrafa á iðkendur sem voru skráð í GKG 2020. Ef einhver ætlar ekki að endurnýja aðildina, vinsamlegast sendið póst þess efnis á Guðrúnu, gudrun@gkg.is

Sjá upplýsingar um niðurgreiðslu æfingagjalda þeirra er búa í Kópavogi.
Sjá upplýsingar um niðurgreiðslu æfingagjalda þeirra er búa í Garðabæ.
Sérstakur styrkur til tekjulágra heimila

Valið er í framtíðar/keppnishópa af þjálfurum og er m.a. miðað við heilsárs ástundun, metnað til framfara og dugnað við æfingar, þátttöku í GSÍ mótum, Kristals mótaröð GKG og forgjöf.

Ef eitthvað er óskýrt, ekki hika við að hafa samband við mig í svarpósti eða í síma 8629204.

Bestu kveðjur fyrir hönd þjálfara GKG.
Hlökkum til að sjá ykkur á æfingum í vetur!
Úlfar Jónsson
Íþróttastjóri GKG

p.s. Varðandi tölvupósta þá sæki ég netföngin í gegnum skráningarnar í Nóra, vinsamlegast uppfærið netföng. Ef bæta á öðrum netföngum við póstlistann látið mig þá vita með svarpósti.

p.s.2 Uppskeruhátíð barna/unglinga/afreksstarfs átti að vera við lok þessa æfingatímabils en vegna samkomutakmarka verður það að bíða betri tíma. Væntanlega höldum við góða hátíð þegar nær dregur vori og gerum upp árangur seinasta sumars í Kristals og Floridana mótaröðinni, auk annara viðurkenninga, og komum öllum í gírinn fyrir komandi sumar.