Annað mót tímabilsins á Unglingamótaröð GSÍ, Nettó mótið, fór fram á Leirdalsvelli hjá GKG dagana 9.-11. júní.
Alls tóku 156 keppendur þátt á sem var haldið í þriðja sinn hjá GKG.
Heildarúrslit mótsins og skor má sjá hér
Mótið gekk einstaklega vel enda veðrið frábært alla keppnisdaga.
Tveir elstu keppnishóparnir hófu leik á fimmtudag og léku 54 holur. Sérstök keppni um Nettóbikarinn var leikin í elstu flokkunum, og sigruðu Logi Sigurðsson og Sara Kristinsdóttir en þau voru á lægsta skori stúlku og pilts í 54 holu höggleiknum.
Aðrir keppnishópar léku 36 holur á tveimur keppnisdögum, föstudag og laugardag. Einnig var Nettó Áskorendamótið leikið á föstudag, fréttir og úrslit er að finna hér.
Lokahóf var haldið fyrir keppendur þar sem boðið var upp á veitingar, veitt nándarverðlaun og dregið úr skorkortum.
Marinó Már myndasmiður tók myndir sem hægt er að sjá hér.
Keppt var í fjórum aldursflokkum pilta og þremur hjá stúlkum og voru úrslitin eftirfarandi:
14 ára og yngri stúlkur
1. sæti Eva Fanney Matthíasdóttir GKG (1. sæti eftir bráðabana)
2.-4. sæti Vala María Sturludóttir GL
2.-4. sæti Pamela Ósk Hjaltadóttir GM
2.-4. sæti Ninna Þórey Björnsdóttir GR
Frá vinstri: Úlfar, Vala, Eva Fanney, Pamela Ósk, Ninna, Stefanía
14 ára og yngri strákar
1. sæti Arnar Daði Svavarsson GKG
2. sæti Snorri Hjaltason GKG
3. sæti Gunnar Þór Heimisson GKG
15-16 ára stúlkur
1. sæti Perla Sól Sigurbrandsdóttir GR
2. sæti Heiða Rakel Rafnsdóttir GM
3. sæti Fjóla Margrét Viðarsdóttir GS
Frá vinstri: Heiða Rakel, Perla Sól, Fjóla Margrét, Guðmundur Ágúst.
15-16 ára drengir
1. sæti Markús Marelsson GK
2. sæti Guðjón Frans Halldórsson GKG
3. sæti Veigar Heiðarsson GA
17-18 ára Stúlkur
1. sæti Sara Kristinsdóttir GM
2. sæti Berglind Erla Baldursdóttir GM
3. sæti Katrín Sól Davíðsdóttir GM
17-18 ára Drengir
1. sæti Jóhann Frank Halldórsson GR
2. sæti Gunnlaugur Árni Sveinsson GKG
3. sæti Heiðar Snær Bjarnason GOS
19-21 árs Drengir
1. sæti Logi Sigurðsson GS
2. sæti Tómas Eiríksson Hjaltested GR
3. sæti Breki Gunnarsson Arndal GKG
Veitt voru nándarverðlaun og voru eftirfarandi næstu holu:
9. braut stúlkur: Katrín Embla Hlynsdóttir GOS 2,44 m
9. braut piltar: Sebastian Blær Ómarsson GR 2,38 m
11. braut stúlkur: Tinna Alexía Harðardóttir GK 4,34 m
11. braut piltar: Tristan Traustason GL 1,35 m
17. braut stúlkur: Ninna Þórey Björnsdóttir GR 2,29 m
17. braut piltar: Arnór Daði Rafnsson GM 28 cm
Við óskum verðlaunahöfum til hamingju með árangurinn og þökkum keppendum öllum fyrir þátttökuna.
Vinningshafar geta sótt verðlaun á skrifstofu GKG.