Nú höfum við bætt við sjálfsafgreiðslukassa til að flýta fyrir afgreiðslu hjá þeim sem eru á hraðferð út á völl. Þar geta golfarar afgreitt sig sjálfir á einfaldan og þægilegan hátt.
Sjálfsafgreiðslan er staðsett beint á móti kælinum við innganginn og þar verður hægt að nálgast kalda drykki, úrval af nesti og ýmislegt góðgæti til að grípa með sér út á völl. ????????????
Athugið að svæðið er vaktað með myndavélum.
Við hlökkum til að bjóða ykkur þessa nýjung og vonum að hún nýtist vel í golfsumrinu! ☀️
Kær kveðja frá Mulligan, Íris-Sólveig og Óli