Leirdalur opnar á fimmtudag, rástímaskráning er þegar hafin fyrir sumarið! 

Vellirnir eru viðkvæmir og biðjum við kylfinga um að ganga vel um, gera við öll boltaför sem þið sjáið og setja torfur í kylfuför.

Hér fyrir neðan eru mikilvægar upplýsingar sem við biðjum ykkur að fara yfir og kynna ykkur.

Reglur um skráningu eru eftirfarandi:

  • Félagsmenn hafa fjögur “rástímatóken” hverju sinni. Sjá upplýsingar um skráningarreglurnar hér.
  • Utanfélagsmenn geta skráð sig með tveggja daga fyrirvara, þ.e. kl. 21 á mánudagskvöldi er hægt að skrá fyrir miðvikudag.

Manstu ekki lykilorðið, auðkennið þitt eða hvernig á að skrá rástíma?

Höldum góðum leikhraða.

  • Á þétt setnum golfvöllum er mjög mikilvægt að halda góðum leikhraða.
  • Við spilum “Ready golf” – fyrstur kemur fyrstur slær.
  • Höldum í við hollið á undan okkur.
  • Verum tilbúin, göngum rösklega, hámarksleitartími er 3 mínútur.
  • Veldu þér teig sem hæfir getu þinni og eykur skemmtanagildið, sjá nánar með því að smella hér.
  • Öflugt vallareftirlit verður í sumar sem áður.

Göngum vel um vellina okkar.

  • Gerið við öll boltaför sem þið sjáið.
  • Gangið vel um glompurnar og sléttið sandinn vandlega með hrífunum.
  • Rusl, tyggjó, sígarettustubbar og baggar eiga að fara í ruslið, þeir sem verða uppvísir af því að henda slíku út á velli fá áminningu og tímabundna frávísun úr klúbbnum eftir annað brot.
  • Sýnum fordæmi og tínum upp allt rusl sem við sjáum og setjum í rusladalla.

Golfhermarnir – sumarkort

  • Við hvetjum félagsmenn að æfa æfa vel og/eða hita upp í golfhermum GKG. Við bjóðum upp á sumarkort í hermana á kr. 17.400 sem gildir  til 30. september. Einnig 12 skipta klippikort á kr. 7.500. 

Eftirlit með mætingu á rástíma

  • Það má búast við því að það verði mikið að gera hjá okkur í sumar og að vellirnir verði mikið bókaðir.
  • Í ljósi þess verður öflugt eftirlit með því að kylfingar mæti á skráða rástíma, það er dapurt að sjá laus pláss í hollum sem eru fullbókuð.
  • Munið að staðfesta rástíma með QR kóða sem staðsettur er á báðum hæðum Íþróttamiðstöðvarinnar.
  • Fyrsta brot er áminning, annað brot er viku frávísun frá völlum GKG.
  • Sjá nánar á heimasíðunni hér.

Njótum samverunnar í sumar, hlökkum til að sjá ykkur á vellinum og umfram allt höfum gaman af þessu!

Staffið