Meistaramóti GKG var haldið í 33. sinn og lauk s.l. laugardag. Alls voru 508 kylfingar skráðir til leiks sem þýddi rástíma alla daga frá kl. 7 að morgni og að seinustu kylfingar voru að koma í hús um 23:30 þegar lengst lét.
Keppt var í 26 flokkum, allt frá 10 ára og yngri til 70 ára og eldri þar sem yngsti keppandinn var á 9. ári og sá elsti á 88. ári. Sannkölluð golfveisla fyrir alla.
Auk starfsmanna voru um 35 sjálfboðaliðar sem tóku að sér hin ýmsu verk til að gera umgjörð mótsins sem glæsilegasta, m.a. framvarðastörf, kakóvakt, skormótttöku, ræsingu og dómgæslu. Án sjálfboðaliða væri ekki hægt að halda jafn glæsilegt mót og raun ber vitni.
Elísabet Ólafsdóttir tryggði sér klúbbmeistaratitilinn í fyrsta sinn á 313 höggum eftir mikla baráttu á lokaholunum við Hrafnhildi Guðjónsdóttur sem lék á 316 höggum. Í þriðja sæti hafnaði María Kristín Elísdóttir á 331 höggi.
Í meistaraflokki karla sigraði Aron Snær Júlíusson í sjötta sinn, en hann lék hringina fjóra á parinu, 284 höggum. Jafnir í öðru sæti á 288 höggum voru Ragnar Már Garðarsson og Guðjón Frans Halldórsson en Ragnar hlaut annað sætið þar sem árangur hans var betri á seinustu 36 holunum.
Hér er skjal með verðlaunasætum allra flokka mótsins.
Sigmundur Einar Másson hannaði og setti í loftið einstaka síðu þar sem hægt var að fylgjast með stöðunni og úrslitum allra flokka mótsins, í 17 klúbbum! Sjá hér.
Á facebook síðu GKG eru fjölmargar myndir frá öllum keppnisdögum, sjá hér.
Við þökkum keppendum kærlega fyrir þátttökuna og óskum verðlaunahöfum til hamingju með glæsilegan árangur.
