Á laugardag fór fram lokahnykkurinn í keppnishaldi GKG. Hefð er komin fyrir því að leika til úrslita í Liðakeppninni og Holukeppninni og halda innanfélagsmót, “Lokamótið“ sama dag. Forgangsrétt í Lokamótinu höfðu þau sem tekið höfðu þátt í Liða- og/eða Holukeppninni í sumar. Einnig voru veitt verðlaun fyrir besta árangurinn í Icelandair VITA Peter Salmon Golf mánudagmótaröðinni sem fer fram allt sumarið.
Sigurvegarar í Liðakeppni GKG 2026 var lið Rúna, en þær lögðu Bogey babes 2-1 í hörkuspennandi úrslitaviðureign þar sem leikinn er einn fjórleikur og tveir tvímenningar, líkt og í öllum leikjum sumarsins.
Í keppninni um bronsið sigruðu A-liðið Kaddy Sjank 3-0.
Í sigurliði Rúna voru: Guðlaug Gísladóttir, Heiðrún Ragnarsdóttir, Helga Guðmundsdóttir, Hjördís Kristinsdóttir, Jóhanna Hjartardóttir, Kristrún L. Ástvaldsdóttir, Sigrún Ýr Árnadóttir og Sólrún Halldórsdóttir.
Lið Bogey babes skipuðu: Brynja Traustadóttir, Drífa Hrönn Stefánsdóttir, Kristbjörg Héðinsdóttir, Kristín Elfa Axelsdóttir, Ólöf Ósk Óladóttir, Sara Smart, Sigrún Auður Sigurðuardóttir og Yrsa Eleonora Gylfadóttir.
Í úrslitaleiknum mættust í fjórleik Kristín Elfa og Ólöf Ósk fyrir Bogey babes gegn Helgu Guðmunds og Kristrúnu fyrir Rúnir. Lið Rúna sigraði 3/2.
Í fyrri tvímenningnum mættust Drífa úr BB á móti Heiðrúnu úr Rúnum þar sem Drífa sigraði 3/2. Staðan því 1-1 fyrir oddaleikinn!
Þannig var ljóst að seinni tvímenningurinn var hreinn úrslitaleikur og mættust þar Brynja úr BB og Sigrún úr Rúnum þar sem Sigrún átti frábæran leik og lagði Brynju 6/5.
Í A-liðinu sem hlaut þriðja sætið skipuðu: Baldur Viðar Baldursson, Björn Sigurðsson, Friðrik Ómar Þorkelsson, Guðjón Berg, Hrafn Þórsson, Kristófer Óli Baldursson, Marinó Már Magnússon og Þorkell Lillie Magnússon.
Við þökkum Ingibjörgu Hinriksdóttur, Ingó, fyrir að halda vel utan um keppnina. Hún er lengst til hægri á myndunum fyrir neðan í verðlaunaafhendingunni.
Einnig þökkum við Sigmundi Einari Mássyni, Simma, fyrir að hanna nýja síðu þar sem hægt var að fylgjast vel með stöðu og úrslitum í öllum leikjum.



