Úrslitin réðust á laugardag í keppninni um Holumeistara GKG 2026 en til úrslita léku sigurvegarar í karla- og kvennaflokki, þau Sigríður Ólafsdóttir og Pálmi Jónsson. Sigríður hefur áður verið í úrslitaleiknum en hún varð Holumeistari GKG 2024.

Eins og Pálmi lýsti hringnum þá var þetta frábær hringur í frábæru veðri og aðstæður eins góðar og þær geta orðið.
Sum pútt féllu, önnur ekki, og sumir „out of bounds“-boltar ákváðu að koma aftur inn á brautina – aðrir ekki.

Leiknum lauk 4/2 fyrir Pálma. Til hamingju með Holumeistaratitilinn Pálmi!

Leikfyrirkomulag Holukeppni GKG er þannig að sigurvegarar í karla- og kvennaflokki leika til úrslita um Holumeistaratitil GKG.

Hér eru úrslitin í karla- og kvennaflokki:

Holumeistari kvenna:
1. Sigríður Ólafsdóttir
2. Fríða Agnarsdóttir
3. Helga Guðmundsdóttir

Holumeistari karla:
1. Pálmi Jónsson
2. Helgi Már Hrafnkelsson
3. Bergþór Sveinsson

Holumeistari GKG:
Pálmi Jónsson eftir úrslitaleik við Sigríði.

Við óskum sigurvegurunum til hamingju með glæsilegan árangur í sumar og þökkum öllum keppendum sem tóku þátt í mótinu fyrir þátttökuna.

Allar nánari upplýsingar um Holukeppni GKG finnast hér.

Sigríður og Fríða sem lenti í 2. sæti

Helga Guðmunds hafði betur í leiknum um 3. sætið á móti Helgu Gunnars

Verðlaunahafar í Holukeppninni. Á myndina vantar Helga Má og Bergþór.

Pálmi og Bergþór sem hafnaði í 3. sæti

Pálmi og Helgi Már sem hafnaði í 2. sæti