Á þriðjudaginn fór fram Styrktarmót fyrir Grensás spítala en markmiðið var að safna fyrir æfingatækjum sem nýtast vel við endurhæfingu skjólstæðinga Grensás. Margir þekkja eflaust til fjöldskyldumeðlima eða vina sem hafa notið góðs af því góða starfi sem unnið er hjá Grensás. Við í GKG eigum einmitt þrjú sem standa okkur nálægt, en Guðrún Helgadóttir (Guðrún á skrifstofunni), Björn hinn norski Haaker og Baldvina Snælaugsdóttir (Baddý) eru skjólstæðingar Grensás um þessar mundir.
Þetta var sannkallaður gleðidagur og söfnuðust rúmlega 1.400.000 krónur. Fullt var í mótið, 144 keppendur sem léku 9 holur á Mýrinni við frábærar aðstæður í sól og blíðu.
Baddý fær sérstakar þakkir fyrir að safna í verðlaunapottinn en heildarverðmæti vinninga nam um 750.000 kr. Sjá lista yfir samstarfsaðila mótsins hér fyrir neðan.
Valgerður Falk, skjólstæðingur Grensás, var einnig burðarás í undirbúningi mótsins og tók myndir af öllum keppendum í upphafi leiks og einnig í verðlaunaafhendingunni sem fór fram um kvöldið í troðfullum veitingasal GKG. Einnig þökkum við öldunga- og kvennanefnd GKG fyrir þeirra framlag í undirbúningi mótsins.
Hér er hægt að skoða myndirnar.
Úrslit mótsins eru hér fyrir neðan:
Karlaflokkur – Punktakeppni
1 Sverrir Davíð Hauksson 21
2 Sigurpáll Jóhannsson 21
3 Þorsteinn Sæþór Guðmundsson 20
4 Einar Ísfeld Ríkharðsson 20
5 Hilmar Þór Kárason 20
Kvennaflokkur – Punktakeppni
1 Ingibjörg Magnúsdóttir 26
2 Jónína Hallgrímsdóttir 24
3 Guðbjörg Guðlaugsdóttir 23
4 Hanna María Hjálmtýsdóttir 22
5 Helga Sigríður Sigurgeirsdóttir 22
Besta skor í höggleik án forgjafar
Karlar: Úlfar Jónsson 35 högg
Konur: María Málfríður Guðnadóttir 39 högg
Nándarverðlaun
2. hola: Regína Ósk Óskarsdóttir 141 cm
4. hola: Jón Einarsson 783 cm
9. hola: Jóhanna Ríkey 35 cm
Lengsta dræv á 5. braut:
Konur: Hrefna Lind
Karlar: Gunnar Gunnarsson
Fuglastríðið – Allir keppendur sem fengu fugl fóru í pott þar sem dregið var um rjúpu listaverk frá Sólheimum.
Helga Sigurgeirsdóttir
Irena Ásdís Óskarsdóttir
Lukkuhjólið – hjólinu var snúið 27 sinnum og var glæsilegum vinningum deilt út.
Við þökkum öllum keppendum og öðrum velunnurum fyrir stuðninginn við þetta góða málefni.
Verðlaunalisti:
BYKO gjafabréf
Byggt og búið Gæðabrúsar
Dressmann Gjafabréf
Elko
epal vinningar
Finnsson Bistro Bröns fyrir 2
Fjallakofinn bland fyrir golfara
Fætur Toga Gjafabréf x2 í göngugreiningu
Gina tricot gjafabréf
GKG
Göngugreining.is Gjafabréf x2
Hagkaup gjafabréf
Herragarðurinn Gjafabréf
Hraunsnef Gjafabréf í náttúruböðin x4
Icelandair Golfvörur
Kappahl gjafabréf
Kringlan Gjafakort
L´Occitane gæðavörur
Laugar spa gjafabréf
Laugar spa Gjafabréf í baðstofu Lauga
Laugarás Lagoon Gjafabréf x2 fyrir 2 í Birki
Lyf og heilsa Gjafabréf
Mango gjafabréf
Myndform bíómiðar og drykkir
Nespresso Vertuo Next kaffivél
Nói Síríus Súkkulaði
NTC Vegleg gjafabréf
Oche Kringlunni gjafabréf í pílu
Sambíó Gjafabréf
Serrano Gjafabréf
Sjóvá Golfvörur
Sólheimar Listaverk
Timberland kr gjafabréf
Icelandair Vita Peter Salmon Golf gjafabréf
Volcano express Gjafabréf fyrir tvo
Ölgerðin Vörur

