Nú fer að líða opnun hjá okkur í GKG og af því tilefni viljum við minna á Kvennatímana vinsælu en þeir eru nú þegar hafnir á vetrarvellinum. Kvennatímarnir eru á þriðjudögum frá kl.16.30 til 18.00. Skráningarblað verður staðsett uppí skála og eru konur vinsamlegast beðnar um að skrá sig tímanlega. Þann 16.maí eftir kvennatímann kl.20.30 verður haldin reglufundur fyrir konur í GKG. Þar fer Þórður Inga dómari yfir helstu golfreglurnar og hvetjum við allar konur til þess að mæta og hlusta á smá upprifjun í golfreglunum.