Ottós Sigurðsson og Sigmundur Einar Másson úr GKG er þessa stundina búnir að ljúka 9 holum á austurríska áhugamannamótinu sem fram fer á Schloss golfvellinum í Schönborn í Austurríki.
Sigmundur hefur leikið á 2 höggum yfir pari. Hann fékk fugl á annarri brautinni en var síðan óheppinn á þeirri 3 og fékk 8 högg eða 3 yfir par. Hann er því samanlagt á 2 höggum yfir pari eftir 9 holur.
Ottó hefur ekki fundið taktinn í dag. Hann er sem stendur á 7 höggum yfir pari með 1 fugl, 2 pör, 5 skolla og 1 tvöfaldan skramba (+3). Það er vonandi að þeir taki sig á á seinni 9 holunum.
Magnús Lárusson úr GKJ hefur ekki hafið leik ennþá og hans skor því ekki komið inn á stöðutöfluna.