Kvennagolf 12. september n.k
Þriðjudaginn 12. september n.k. verður kvennagolfið með þeim hætti að konur geta spilað 9 holur á “gamla” vellinum og verða að mæta og láta kúlu í standinn. Ekki verður hægt að taka frá tíma vegna hins breytta fyrirkomulags á golfvellinum vegna tilkomu Leirdalsins. Verður þetta síðasta þriðjudagskvennagolf sumarsins. Lokamótið verður svo laugardaginn 16. september n.k., sjá auglýsingu á heimasíðunni og í golfskálanum.
Kvennanefndin