Búið er að semja um fríspil félagsmanna fyrir sumarið 2007. Sama fyrirkomulag verður á þessum samningum eins og undanfarin ár. Ákveðið var að ganga ekki til samstarfs við Golfklúbbinn Leyni heldur gera árssamning við Golfklúbb Borgarness. Hamarsvöllur mun opna sem 18 holu völlur í sumar og stendur félagsmönnum GKG til boða að leika hann án greiðslu.

Árið 2007 geta meðlimir GKG því leikið án greiðslu hjá eftirfarandi klúbbum:


GHR – Golfklúbbur Hellu Rangárvöllum, Strandarvöllur
GB – Golfklúbbur Borgarness, Hamarsvöllur
GOS – Golklúbbur Selfoss, Svarfhólsvöllur
GS – Golfklúbbur Suðurnesja, Hólmsvöllur í Leiru