Meistaramóti GKG fer nú senn að ljúka, aðeins einn dagur eftir. Klúbbmeistararnir frá því í fyrra, Sigmundur Einar Másson og Eygló Myrra Óskarsdóttir eru með afgerandi forystu í meistaraflokkum karla og kvenna. Sigmundur er 13 höggum betri en Kjartan Dór Kjartansson og Eygló Myrra á heil 14 högg á Ingunni Gunnarsdóttur. Því þarf ansi mikið að gerast til að þau haldi ekki titlum sínum þetta árið.

 

Rástímar fyrir morgundaginn eru komnir á golf.is, undir dagur 7. Við hvetjum síðan alla til að skrá sig í lokahófið frábæra sem fram fer annað kvöld. Nánari upplýsingar í ProShop.