Atvinnukylfingar GKG, þeir Birgir Leifur Hafþórsson og Ottó Sigurðsson, stóðu sig best af kylfingum okkar í GKG á nýliðnu Íslandsmóti í höggleik sem fram fór á Hvaleyrarvelli Golfklúbbsins Keilis um helgina. Hvorugur þeirra átti þó sérstaklega gott mót, Birgir endaði í sjötta sæti á níu höggum yfir pari og Ottó í því sjöunda á 10 höggum yfir pari.
Í kvennaflokki var stóð Ingunn Gunnarsdóttir sig þrælvel, spilaði gott golf og endaði í 6 sæti á 33 höggum yfir pari.
Öðrum kylfingum GKG gekk ekki eins vel, hér er listi yfir þá sem komust í gegnum niðurkskurðinn:
Karlaflokkur:
6. Birgir Leifur Hafþórsson +9
7. Ottó Sigurðsson + 10
9. Brynjólfur Einar Sigmarsson +12
17. Starkaður Sigurðarson +17
18.-19. Guðjón Henning Hilmarsson +18
18.-19. Kjartan Dór Kjartansson + 18
20.-21. Sigmundur Einar Másson + 19
44.-45. Haukur Már Ólafsson + 24
46.-48. Sigurður Rúnar Ólafsson +25
52.-54. Björgvin Smári Kristjánsson +27
66.-70. Gunnar Páll Þórisson + 32
Kvennaflokkur:
6.-7. Ingunn Gunnarsdóttir + 33
14. María Málfríður Guðnadóttir + 48
15. Erna Valdís Ívarsdóttir + 57