Þriðjudaginn 28. ágúst n.k. verður Hatta- kjólamótið. Konur eru hvattar til að mæta í kjólum og með hatta. Leiknar verða 9 holur í Vetrarmýrinni og veitt verðlaun í lok dagsins. Viðurkenningar verða veittar fyrir smartasta hattinn og kjólinn, nándarverðlaun á 2. og 9. holu og fyrir lengsta höggið á braut á 5. braut. Þá fá þær þrjár konur sem eru með flesta punkta verðlaun. Mætum allar og skemmtum okkur vel í golfinu síðustu daga sumarsins. Veðurspáin er reyndar ekki góð. Fylgist með á heimasíðunni eða hringið í golfskálann eða nefndarkonur ef kemur til þess að mótinu verði frestað vegna veðurs. Ekkert mótsgjald. Skráning fer fram á golf.is.
Við minnum á lokamótið laugardaginn 15. september n.k. Takið daginn frá.
Kvennanefndin