Hin árlega Firmakeppni GKG fer fram næstkomandi laugardag, 22. september. Spilað er Texas Scramble og er þátttökugjald á hvert lið 20.000 krónur. Fyrirtæki mega að sjálfsögðu senda fleiri en eitt lið til keppni. Ræst verður út frá klukkan átta og er frábær matur í boði að leik loknum. Þeir sem vilja skrá lið frá sínu fyrirtæki eru eindregið hvattir til að hafa samband við Ingigerði í síma 565-7373 eða senda tölvupóst á ingigerdur@gkg.is og skrá sig til leiks.

 

Nú er um að gera fyrir alla félagsmenn GKG að fá sem flest fyrirtæki til leiks og ekki hika við að skrá sig og spila á frábærum Leirdalsvelli okkar. Firmakeppnin er mikilvæg fjáröflun fyrir klúbbinn og því er um að gera að hver sem vettlingi getur valdið fái sitt fyrirtæki í lið með sér. Hlökkum til að sjá ykkur á laugardaginn!