Félagmsenn! Minnum á aðalfundinn á mánudaginn 26. nóvember kl 20:00 í Stjörnuheimilinu. Sjá fyrri frétt:

 

 

Aðalfundur GKG árið 2007 verður haldinn mánudaginn 26. nóvember næstkomandi. Fundurinn verður haldinn í Stjörnuheimilinu við Ásgarð (fyrir aftan sundlaugina og íþróttahúsið) í Garðabæ og hefst stundvíslega klukkan 20:00. Dagskrá er með hefðbundnu aðalfundarsniði, sjá nánar hér fyrir neðan. Allir félagar GKG hvattir til að mæta.

Dagskrá fundarins er sem hér segir:

  1. Fundarstjóri og fundarritari kosnir
  2. Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári
  3. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykkis
  4. Rekstrar- og fjárfestingaáætlun komandi starfsárs kynnt
  5. Lagabreytingar og aðrar tillögur skv. 8. gr. teknar til afgreiðslu
  6. Kosning formannst til eins árs
  7. Kosning þriggja meðstjórnenda til tveggja ára og þriggja varamanna til eins árs
  8. Kosning tveggja endurskoðenda
  9. Önnur mál

Hlökkum til að sjá sem flesta!

Stjórn og starfsfólk GKG