Á dögunum fékk GKG nýjan aðstoðarvallarstjóra til liðs við sig, en Hafliði Skúlason hvarf til annarra starfa í lok ágúst.

Nýi aðstoðarvallarstjórinn er Sveinn Steindórsson og tók hann til starfa um miðjan nóvember. Hann er 24 ára gamall og hefur góða og víðtæka reynslu af golfvallarstörfum, bæði hér heima og í Skotlandi – en hann starfaði einmitt þar um tíma.

Sveinn kemur til með að styrkja vallarstarfsmannaliðið til muna og býður stjórn og annað starfsfólk GKG hann innilega velkominn til starfa.