Golfferð til Skotlands
08. – 11. maí 2008

Ayrshire héraðið á vesturströnd Skotlands er sannkölluð paradís golfarans. Þar er úrval frábærra golfvalla og í þessari ferð sem eingöngu er í boði fyrir meðlimi GKG gefst einstakt tækifæri á að spila 4 stórgóða links velli í Ayrshire á fjórum dögum. Þessir vellir hafa allir verið notaðir fyrir lokaúrtökumót British Open.

Gist verður á Gailes Hotel (www.gaileshotel.com) – 40 mínútna akstur frá Glasgow flugvelli og 5 – 15 mín. akstur til golfvallanna.

Hótelið býður upp á frábæra aðstöðu fyrir golfara:

  • Tveir 9 holu golfvellir
  • Flóðlýst Driving Range
  • Líkamsræktarstöð, spa & sauna
  • Golfverslun – American Golf Discount (www.americangolf.co.uk)

Verð: 61.500 (tvíbýli) / 71.250 (einbýli)

Innifalið í verði:

  • Akstur frá og til Glasgow flugvallar
  • Gisting (3 nætur) á Gailes Hotel, Irvine með morgun og kvöldverði
  • 4 golfhringir (Dundonald Links, Kilmarnock Barassie, Irvine Bogside & Prestwick St Nicholas)
  • Allur akstur til og frá golfvöllum
  • Íslensk fararstjórn (Snorri Guðmundsson)

Ath. flug ekki innifalið – hægt að bóka flug til Glasgow á www.icelandair.is

  • Keflavík – Glasgow, fimmtudag 8/5 (7:20-10:25)
  • Glasgow – Keflavík, sunnudag 11/05 (21:35-22:55)

Takmarkaður sætafjöldi – síðasti bókunardagur í ferðina er 31. mars n.k.

Hægt er að fá frekari upplýsingar og bóka í síma 897-8841 (Snorri) eða með því að senda tölvupóst á snorri@skotganga.co.uk

Skotganga stendur fyrir fjölmörgum ferðum til Skotlands, auk golfferða er boðið upp á skipulagðar gönguferðir og hálandaferðir svo eitthvað sé nefnt. Áhersla er lögð á fjölbreytni og persónulega þjónustu.
Allar nánari upplýsingar er að finna á  www.skotganga.co.uk