Næstkomandi laugardag, þann 24. maí, opnar Leirdalshluti Vífilsstaðavallar í fyrsta skipti í sumar. Af því tilefni hefur verið ákveðið að efna til glæsilegs innanfélagsmóts þann sama dag og gefa félagsmönnum því tækifæri á að spila völlinn fyrstir allra. Völlurinn er stórglæsilegur og er víst að menn klæjar ærlega í fingurnar að komast og spila einn flottasta völl landsins.
Keppt verður í þremur forgjafarflokkum:
Fgj, 10,0 og undir
Fgj, 10,1 – 20,0
Fgj, 20,1 og yfir, Hámarksforgjöf KK og KVK er 36.
Keppnisfyrirkomulag verður punktakeppni og verða veitt verðlaun fyrir 1.-3. sæti í öllum flokkum. Einnig verða veitt nándarverðlaun á tveimur par 3 holum.
Mótsgjald 2.000 krónur.
Sjáumst hress og kát og bjóðum Leirdalsvöllinn velkominn í frábært golfsumar!