Jón Ólafsson lést í gær langt um aldur fram, 61 árs að aldri, eftir skamvinn en afar erfið veikindi. Hann var fæddur 15. maí 1947. Jón var kvæntur Ingigerði Eggertsdóttur flugfreyju og eiga þau þrjú börn. Jón var flestum félagsmönnum GKG að góðu kunnur enda var hann lengi vel ein af aðaldriffjöðrum klúbbsins okkar. Sat hann um árabil í stjórn GKG og var formaður afreksnefndar á þeim tíma. Var hann meðal annars liðstjóri karlasveitar GKG þegar klúbburinn vann titilinn í fyrsta skipti árið 2004.
Ljóst er að GKG og öllum þeim sem Jón þekktu er mikill missir af þeim manni. GKG sendir innilegar samúðarkveðjur til fjölskyldu Jóns á þessum erfiðu tímum.