Ágætu félagsmenn

Vegna misstaka við skipulagningu boðsmóta gerðist það að tvö boðsmót eru skráð á völlinn tvo daga í röð á fimmtudaginn og föstudaginn. Þýðir það að Leirdalurinn verður lokaður mest allan daginn báða dagana. Það er ekki stefna klúbbsins að halda boðsmót svo þétt og biðjum við félagsmenn velvirðingar á þessum mistökum. Á móti bendum við á að laugardagurinn er alveg laus fyrir félagsmenn og vonum að það bæti upp þessa lokun á vellinum.

Starfsfólk GKG