Nú styttist í jólin og fylgjum við nokkurn veginn skólum hvað frí varðar.
Við verðum með æfingar til og með næsta fimmtudag (20. des), almennir hópar verða með opinn tíma núna á fimmtudag frá kl. 15-17, en afreks- og keppnishópar fylgja æfingatöflunni þann dag.
Æfingar hefjast á ný samkvæmt æfingatöflu 7. janúar.
Föstudaginn 28. des verður opið hús í GKG skálanum fyrir krakkana frá kl 13-16. Við ætlum að hittast og horfa á eina bíómynd og panta pizzu. Kostnaður per einstakling verður kr. 500 en við auglýsum þetta nánar í næstu viku.
Fyrir hönd þjálfara óska ég ykkur gleðilegra jóla og gleðilegs nýs árs, með kærum þökkum fyrir skemmtilegt ár sem er að líða.
Með bestu kveðjum,
Úlfar Jónsson
Íþróttastjóri GKG
PGA golfkennari
+354 862 9204