Í gær lauk á Leirdalsvellinum okkar Íslandsmóti unglinga í holukeppni. Okkar kylfingar stóðu sig vel og komust í úrslit í þremur flokkum af sex. Ragnar Már Garðarsson stóð uppi sem sigurvegari í flokki 17-18 ára pilta eftir harða baráttu við félaga sinn Aron Snæ Júlíusson, en leikurinn fór 1/0.

Gunnhildur Kristjánsdóttir lék til úrslita í flokki 17-18 ára stúlkna við Önnu Sólveigu Snorradóttur, sem sigraði um seinustu helgi í Eimskipsmótaröðinni í Vestmannaeyjum. Anna Sólveig sigraði 2/1.

Óðinn Þór Ríkharðsson þurfti að láta í minni pokann fyrir Gísla Sveinbergssyni í úrslitaviðureigninni í flokki 15-16 ára drengja, en leiknum lauk með sigri Gísla 4/3.
Úrslit úr öllum leikjum í holukeppninni má sjá hér, en verðlaunasætin koma hér fyrir neðan.

Piltaflokkur, 17-18 ára:
1. Ragnar Már Garðarsson, GKG
2. Aron Snær Júlíusson, GKG
3. Kristinn Reyr Sigurðsson, GR

Stúlknaflokkur, 17-18 ára:
1. Anna Sólveig Snorradóttir, GK
2. Gunnhildur Kristjánsdóttir, GKG
3. Bryndís María Ragnarsdóttir, GK

Drengjaflokkur, 15-16 ára:
1. Gísli Sveinbergsson, GK
2. Óðinn Þór Ríkharðasson, GKG
3. Birgir Björn Magnússon, GK

Telpnaflokkur, 15-16 ára:
1. Saga Traustadóttir, GR
2. Þóra Kristín Ragnarsdóttir, GR
3. Sigurlaug Rún Jónsdóttir, GK

Strákaflokkur, 14 ára yngri:
1. Arnór Snær Guðmundsson, GHD
2. Ingvar Andri Magnússon, GR
3. Sigurður Már Þórhallsson, GR

Stelpuflokkur, 14 ára yngri:
1. Ólöf María Einarsdóttir, GHD
2. Gerður Hrönn Ragnarsdóttir, GR
3. Hekla Sóley Arnarsdóttir, GK

Forsíðumynd kylfingur.is: Íslandsmeistarar í öllum flokkum unglinga. Ragnar Már lengst til vinstri.