Keppni lauk fyrr í dag á Duke of York Young Champions mótinu, sem haldið er á hinum fræga strandvelli Royal St. Georges velli í Kent á Englandi. Það var Ítalinn Guido Migliozzi sem sigraði á 215 höggum (+5). Hann endaði einu höggi á undan Englendingnum Jack Singh Brar. Nokkuð mikill vindur var á meðan mótinu stóð.
Tveir keppendur frá flestum löndum, piltur og stúlka, frá löndum víðsvegar úr heiminum tóku þátt, alls 55 keppendur.
Anna Sólveg Snorradóttir úr Keili hafnaði í 26. sæti á 233 höggum (77-76-80) og okkar maður Aron Snær Júlíusson lék á 235 höggum (78-80-77).
Ísland hefur átt tvo sigurvegara undanfarin ár, Guðmund Ágúst Kristjánsson 2010 og Ragnar Már Garðarsson 2013. Mótið er hátt skrifað og þykir mikill heiður að fá keppnisrétt á því. Þetta fer svo sannarlega í reynslubankann hjá þessum tveimur bráðefnilegu kylfingum.
