Þrír af efnilegustu kylfingum GKG eru staddir í jólafríi með fjölskyldum sínum í Orlando og tóku þátt í sterku unglingamóti á PARS Junior mótaröðinni. Mótið fór fram 28.-30. desember og var haldið á Orange County National, sem er mörgum Íslendingum að góðu kunnur, en íslenski landsliðshópurinn fór nokkur ár þangað í æfingaferðir. Einnig er þar haldið annað hvert ár lokakeppnin í úrtökumótinu um sæti á PGA mótaröðinni.
Þeir Bragi Aðalsteinsson, Hlynur Bergsson og Kristófer Orri Þórðarson tóku þátt í mótinu og stóðu sig allir mjög vel og öðluðust góða og mikilvæga reynslu sem nýtist þeim á komandi tímabili. Kristófer náði frábærum árangri og lék hringina þrjá á aðeins 4 höggum yfir pari, og endaði jafn í 7. sæti. Frábær árangur hjá Kristófer sem var nýlega valinn í Afrekshóp GSÍ fyrir árið 2014, eftir góðan árangur á seinasta tímabili.
Sjá árangur þeirra hér fyrir neðan, einnig er hægt að smella hér til að skoða úrslit allra og fræðast nánar um mótið.
15-18 ára flokkur
J7. sæti Kristófer Þórðarson 74 74 72 = 220
31. sæti Hlynur Bergsson 78 82 78 = 238
13-14 ára flokkur
10. sæti Bragi Aðalsteinsson 80 81 85 = 246
Mynd: Frá vinstri: Bragi, Hlynur og Kristófer