Boðað er til aðalfundar GKG fimmtudaginn 29. nóvember 2012. Fundurinn verður haldinn í golfskála GKG og hefst klukkan 20:00. 

Dagskrá aðalfundar er sem hér greinir:

1. Fundarstjóri og fundarritari kosnir.

2. Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári.

3. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykkis.

4. Rekstrar- og fjárfestingaáætlun komandi starfsárs kynnt.

5. Lagabreytingar og aðrar tillögur skv. 8. gr. teknar til afgreiðslu.

6. Kosning formanns til eins árs.

7. Kosning þriggja meðstjórnenda til tveggja ára og þriggja varamanna til eins árs.

8. Kosnir tveggja endurskoðenda.

9. Önnur mál.

Engar tillögur bárust fyrir tilsettan tíma að lagabreytingum.

Stjórn GKG.