Umsóknareyðublöð ásamt reglugerð fyrir sjóðinn fást á skrifstofu íþrótta og tómstundamála að Fannborg 2 II hæð. Nánari upplýsingar er gefnar í síma 570 1600.

Samkvæmt reglugerð eru markmið sjóðsins eftirfarandi:

a) Að veita afreksíþróttafólki í íþróttafélögum í Kópavogi fjárhagslegan styrk vegna æfinga og/eða keppni, og þannig búa þeim sem besta aðstöðu til að stunda íþrótt sína

b) Að veita afreksíþróttafólki í hópíþróttum í íþróttafélögum í Kópavogi sem náð hefur afburðaárangri fjárhagslegan styrk og gera þeim kleift að búa sig enn betur undir áframhaldandi keppni.

c) Að styrkja afreksíþróttafólk sem á lögheimili í Kópavogi og stundar íþrótt sem ekki er iðkuð með íþróttafélagi í Kópavogi.

d) Að veita árlega styrki og viðurkenningar fyrir unnin afrek í íþróttum jafnt kvenna sem karla.

Umsóknareyðublöð ásamt reglugerð fyrir sjóðinn fást á skrifstofu íþrótta- og tómstundamála Fannborg 2, II hæð.