Því er skemmst frá að segja að þau dönsuðu sig inn í 13 para undanúrslit og enduðu í 11.sæti sem er besti árangur Íslendinga í flokki 14-15 ára til þessa og besti árangur allra Norðurlandanna á þessari keppni. Samhliða heimsmeistaramótinu fór fram opin 5 og 5 dansa keppni þar sem þau höfnuðu í 4.sæti í bæði Standard og Latin dönsum. Alex Freyr er aðeins 13 ára gamall og er á sínu yngra keppnisári í þessum flokki í dansinum. Hann og Ragna hafa dansað saman í 2 ár og hafa þau náð inn í úrslit erlendis í hverri keppninni á fætur annarri t.d í Hollandi, Írlandi, Danmörk og Bretlandi.
Alex Freyr er líka stórgóður kylfingur, en hann er næst efstur í sínum aldursflokki í KB banka mótaröðinni í flokki 13 ára og yngri. Það virðist því vera að margt liggi fyrir þessu mikla efni framtíðarinnar sem æfir af kappi golfið hjá GKG og dansinn hjá Hvönn.