Eins og glöggir meðlimir hafa kannski séð fer fram unglingamót á vegum GSÍ á Leirdalsvellinum nú um helgina (18. og 19. júní). Mótið kom óvænt upp og biðjumst við velvirðingar á þeim óþægindum sem mótið kann að valda.
Um leið viljum við benda meðlimum á að þeir geta spilað aðra golfvelli með 50% afslætti á meðan á mótinu stendur. Einnig viljum við benda á vinavellina okkar, Leyni, Borgarnes, Hellu og Suðurnes, en þar greiða meðlimir GKG einungis 1.000 kr. gegn framvísun félagsskírteinis.