About Agnar Már Jónsson

This author has not yet filled in any details.
So far Agnar Már Jónsson has created 580 blog entries.

GKG Íslandsmeistarar kvenna í sveitakeppni GSÍ 2013!

Sveit GKG kom gríðarlega á óvart í sveitakeppninni í ár og lagði bæði sveitir GR og GK í leið sinni að titlinum.

18. ágúst verður skrifaður í sögubækur GKG en þá vann kvennasveit okkar sinn fyrsta sigur í sveitakeppni GSÍ.  Sigurinn náðist með þrautseigju og einbeitingu stúlknanna okkar. Sveitin lenti í […]

Kvennasveitin byrjar sveitakeppnina með látum

Kvennasveit GKG hóf leik í Leirunni nú í morgun í sveitakeppninni. Mótaðilinn var GKj og fóru leikar þannig að GKG konur unnu nbso online casino reviews alla sína leiki og endaði viðureignin því 5-0. Keilir vann jafnframt alla sína leiki á móti Sauðkræklingum.

Stöðuna í fyrstu deild kvenna má […]

Sveitakeppnin hafin – GKG með titil að verja

Í dag hefst sveitakeppni GSÍ 2013, karlasveitin keppir á Hvaleyrinni en kvennasveitin á Hólmsvellinum í Leiru.

Karlasveitin á titil að verja og keppir í riðli með Keili, Suðurnesjamönnum og Nesklúbbinum.

Kvennadeildin keppir í riðli með Keili, Kjöl og Sauðkræklingum.

Hægt er að sjá keppnisfyrirkomulag karlasveitarinnar með því að smella hér

Hægt er að […]

Vallarmet hjá Birgi Leifi og Valdísi Þóru

Birgir Leifur Hafþórsson setti nýtt og glæsilegt vallarmet af hvítum teigum á Leirdalsvelli á öðrðum degi Símamóts Eimskipamótaraðarinnar. Biggi hóf leikinn með látum og náði fugli á fyrstu þrem holunum og bætti þeim fjórða við á fimmtu. Biggi Leifur var átta undir eftir 17 en misheppnað vipp á 18. kostaði […]

Símamót Eimskiptamótaraðarinnar á Leirdal

Í morgun hófst 1. dagur Símamótsins sem er 5. mót sumarsins í Eimskipamótaröðinni. Aðstæður eru nokkuð erfiðar, suðaustan 10 m/s og gengur á með skúrum eða súld. Birgir Leifur fór út fyrstur manna í morgun og kom í hús á fimm yfir pari en heilladísirnar voru ekki með honum í […]

Úrslit úr V-Sport mótaröðinni 7. ágúst

Á miðvikudag fór fram lokamótið  í V Sport Unglingamótaröð GKG.

Hér fyrir neðan má sjá nöfn þeirra sem náðu verðlaunasætum, en heildarúrslit eru að finna á www.golf.is.

Verðlaun í öllum flokkum voru eftirfarandi:

  1. sæti: Einn bíómiði í Laugarásbíó og 10 æfingafötur
  2. sæti: Einn bíómiði í Laugarásbíó og 7 æfingafötur
  3. sæti: Einn bíómiði í Laugarásbíó og 5 æfingafötur

Verðlaun […]

Eimskipsmótaröðin 9.-11. ágúst

Dagana 9.-11. ágúst fer fram mót á Eimskipsmótaröðinni á Leirdalsvelli GKG. Mótaröðin er mótaröð þeirra bestu og margir af bestu kylfingum landsins mæta því til að taka þátt.

Utanumhald við slíkt mót er töluvert og því óskar mótsstjórn eftir sjálfboðaliðum sem hafa áhuga á því að aðstoða við ræsingu, innslátti á skori, […]

Opna Gull mótið – Úrslit

Opna Gull mótið fór fram á Leirdalsvelli mánudaginn 5. ágúst. Þrátt fyrir töluverðan vind spiluðu 154 kylfingar og voru úrslitin eftirfarandi.

Punktakeppni

1. Sæti – Þorvaldur Freyr Friðriksson GK 39 punktar (21 á seinni níu)

2. Sæti – Einar Guðmundsson GKG  39 punktar (19 á seinni níu)

3. Sæti – Bergur Einar Dagbjartsson GVG […]

Go to Top