Úrslit meistaramóts
Búið er að setja inn skjal með úrslitum úr meistaramótinu og hægt er að nálgast það hér.
Búið er að setja inn skjal með úrslitum úr meistaramótinu og hægt er að nálgast það hér.
Þriðja mót ársins á miðvikudagsmótaröðinni fer fram á morgun 15. júlí. Miðvikudagsmótaröðin verður spiluð þrisvar sinnum í viðbót yfir sumarið.
Við viljum vekja athygli á því að myndasíðan er komin í lag eftir að hafa legið niðri undanfarið.
Einnig er búið að setja inn myndir frá meistaramótinu sem er í fullum gangi og hvetjum við fólk til að kíkja á þær.
Úrslit úr annari umferð unglingamótaraðarinnar eru komin inn.
Hægt er að sjá úrslitin hér.
Hið árlega niðjamót GKG fer fram laugardaginn 4.júlí. Þetta er stærsti viðburðurinn í fjölbreyttu fjáröflunarstarfi afreksunglinga klúbbsins og hvetjum við því mömmur og pabba og ömmur og afa til þess að mæta með niðjum sínum og eiga góða stund saman við skemmtilegan leik og spennandi keppni.
Úrslit eru komin úr fyrsta móti Svalamótaraðarinnar og má nálgast þau hér. Góð þáttaka var í mótinu og tóku rúmlega 20 krakkar þátt. Yfirlit yfir efstu sætin má sjá hér að neðan en veitt eru verðlaun fyrir efstu 3 sætin í hverjum flokki og einnig fyrir mótaröðina í heild […]
Áætlaðir rástímar ásamt flokkaskiptingu fyrir meistaramótið eru komnir inn á heimasíðuna.
Nálgast má bæði skjölin hér.
Skráning á mótið fer fram á www.golf.is og hvetjum við alla til að skrá sig.
Fyrsta mót ársins á miðvikudagsmótaröðinni fer fram á morgun 10. júní. Miðvikudagsmótaröðin verður spiluð sex sinnum yfir sumarið. Dagsetningarnar eru: 10. júní – 1. júlí – 15. júlí – 29. júlí – 12. ágúst – 26. ágúst
Fyrirkomulagið er það sama og undanfarin ár. Kylfingar skrá sig venjulega […]
Komin eru í hús nýtt upplag af félagsskírteinum.
Þeir sem eru nýir í klúbbnum eða voru ekki með í seinasta upplagi geta nú nálgast skírteini sín hjá okkur í rástímaskránni.
Einnig bendum við félögum sem eiga eftir að sækja að gera það við fyrsta tækifæri.