Klúbburinn þakkar þátttakendum fyrir skemmtilegt og vel heppnað mót og óskar um leið nýkrýndum klúbbmeisturum, þeim Alfreð Brynjari Kristinssyni og Ingunni Gunnarsdóttur, til hamingju með titilinn.
Einnig bendum við áhugasömum á að búið er að setja inn myndir bæði frá mótinu og lokahófinu á myndasíðuna.