About johann

This author has not yet filled in any details.
So far johann has created 246 blog entries.

Simmi líklegastur

Skv. áliti lesenda GKG.IS er Sigmundur Einar Másson talinn líklegastur til afreka á KB Banka mótaröðinni í sumar. 34,5% lesenda telur að Sigmundur nái bestum árangri í mótaröðinni í sumar. 27,7% velja Ottó Sigurðsson, en þeir tveir bera af í áliti lesenda. Björn Halldórsson er að mati 6,2% lesenda talinn líklegur til að ná góðum árangri. Aðrir voru með innan við 5% af greiddum atkvæðum.
Með því að ýta á "Lesa meira" getur þú séð niðurstöðu könnunarinnar í heild.

By |27.06.2006|Categories: Fréttir almennt|

Ottó endaði í 2. sæti eftir bráðabana

Ottó Sigurðsson endaði í 2. sætinu eftir bráðabana við Ólaf Má Sigurðsson úr GR eftir að báðir höfðu lokið leik eftir 3. hring á 211 höggum. Þeir léku báðir á 74 höggum í dag.

Ottó sagðist hafa verið að slá vel en púttin hafi ekki alveg ratað rétta leið. Hann var enga síður mjög bjartsýnn á framhaldið enda hafnað í top 5 á tveimur fyrstu mótum sumarsins.

Sigmundur Einar Másson tók sér verðskuldað frí þessa helgi eftir sigurinn á Opna Austuríska en kappinn er búin að vera alveg á full síðan í vetur. Við fylgjumst spennt með gangi mála hjá okkar mönnum en næsta mót í KB-Banka mótaröðinni fer fram í Leirunni eftir tæpar tvær vikur.

By |11.06.2006|Categories: Fréttir almennt|

Ottó fékk 2 erni í röð

Ottó Sigurðsson er sem stendur í 1.-2. sæti eftir fyrsta hring á KB Banka mótaröðinni í Vestmannaeyjum. Hann lék á 69 höggum, 1 höggi undir pari.

Ottó fékk 3 skolla í röð á 1.,2. og 3. holu en náði að koma sér 1 undir par með því að fá 2 erni […]

By |10.06.2006|Categories: Fréttir almennt|

Sigmundur í toppformi

Sigmundur Einar er efstur á Opna austurríska áhugamannamótinu í Schönborn í Austurríki þegar mótið er hálfnað eftir tvo af fjórum hringjum. Hann lék á 75 höggum í dag og 73 höggum í gær og er því samtals á 2 höggum yfir pari og er í efsta sæti í karlaflokki.
Sigmundur lék á 2 höggum yfir parinu í dag með því að fá 14 pör, 3 fugla og einn skolla.

By |03.06.2006|Categories: Fréttir almennt|

Flestir félagsmenn spiluðu Skagann í fyrra

Skv. skoðanakönnun hér á GKG.IS var Garðavöllur á Akranesi vinsælastur hjá félagsmönnum GKG á síðasta sumri. Spurt var "Hvaða vinavöll GKG spilaðir þú oftast í fyrra"

Alls voru það 280 manns sem tóku þátt 33,2% léku Garðavöll oftast. Svarfhólsvöllur á Selfossi varð í öðru sæti með 26,8% atkvæða, Leiran […]

By |02.06.2006|Categories: Fréttir almennt|

220 manns á Rásar 2 mótið

Rásar 2 mótið sem er án ef það mót sem gefur flesta vinninga af öllum golfmótum á íslandi auk þess að vera fjölsóttasta mótið annað árið í röð. Í fyrra léku 216 manns í mótinu. Í ár eru 220 manns skráðir til leiks.

Eins og í fyrra er bryddað upp á þeirri nýbreytni að veitt eru nándarverðlaun eftir 2 og 3 högg á velflestum brautum vallarins hvort heldur er um par 4 eða par 5. Einungis brautir 6, 8, 12 og 16 eru án vinninga.

By |02.06.2006|Categories: Fréttir almennt|

Sigmundur Einar í 2 sæti

Sigmundur Einar er í 2 sæti að loknum fyrsta degi á austurríska áhugamannamótinu sem fram fer á Schloss golfvellinum í Schönborn í Austurríki. Hann lék á samtals 73 höggum sem er par vallarins. Sigmundur fékk alls 2 fugla, 1 örn, 1 skolla og síðan 3 yfir á 3 brautinni eins […]

By |01.06.2006|Categories: Fréttir almennt|
Go to Top