About Úlfar Jónsson

This author has not yet filled in any details.
So far Úlfar Jónsson has created 858 blog entries.

Æfingaferð GKG afreksunglinga til Spánar 5.-12. apríl 2010

Líkt og undanfarin ár var farið í æfingaferð til útlanda til að undirbúa afrekskylfinga félagsins fyrir sumarið. Ferðin stóð þeim kylfingum til boða sem eru í afrekshópum unglinga og meistaraflokkum karla og kvenna. Því miður hentaði tímasetningin illa fyrir meistaraflokkskylfingana og fór aðeins einn úr þeirra röðum, en tólf úr unglingahópunum. Að auki voru þjálfararnir Derrick Moore og undirritaður. Fimm foreldrar nýttu tækifærið og slógust með í för. Eins og áður leggur GKG einungis til tíma þjálfarana, en allur kostnaður er greiddur af þátttakendum, og söfnuðu krakkarnir fyrir ferðinni með ýmsum hætti frá því í nóvember. Mæður þriggja þátttakenda, þær Valgerður, Eva og Dröfn sáu um skipulagningu á fjáröflunum og fá þær miklar þakkir fyrir það.

By |20.04.2010|Categories: Fréttir almennt|

Piltar og drengir komnir í undanúrslit í Sveitakeppni unglinga

Sveitakeppni unglinga hófst á föstudaginn og lýkur á morgun sunnudag. Í dag var leikin holukeppni, stúlkurnar í Leirunni og sigruðu GKG 16-18 ára stúlkur Sauðárkrók 3-0, mjög glæsilegt hjá þeim.  Ein umferð var leikin hjá þeim eldri í dag en á morgun leika þær við NK um […]

GKG Íslandsmeistarar í sveitakeppni drengja!

Í gær lauk Sveitakeppni unglinga, en hún fór fram á þremur stöðum, stúlkur hjá Golfklúbbi Suðurnesja, piltar 16-18 ára hjá Golfklúbbi Þorlákshafnar og drengir 15 ára og yngri hjá Golfklúbbi Flúða.

A sveit drengja gerði sér lítið fyrir og varð Íslandsmeistari eftir spennandi úrslitaviðureign við A sveit Keilis. […]

Úrslit úr fimmta móti Unglingamótaraðar GKG

Hér fyrir neðan má sjá úrslit úr fimmta mótinu í Unglingamótaröð GKG, en mótinu lauk 16. ágúst. Verðlaunahafar geta nálgast verðlaun sín í golfverslun GKG.

Besti samanlagður árangur úr þremur mótum telur í heildarkeppninni, en verðlaun fyrir það verða afhent á uppskeruhátíðinni, en dagssetningin hennar verður kynnt von bráðar.

Ragnar Már sigraði í seinasta stigamóti ársins

Seinasta stigamót ársins í Arionbankamótaröðinni fór fram um helgina í Borgarnesi. Árangur okkar unglinga var glæsilegur, en Ragnar Már Garðarsson sigraði í 15-16 ára flokki eftir bráðabana við Kristinn Reyr Sigurðsson úr GR. Ragnar Már er búinn að vera mjög sigursæll undanfarið, en hann varð Íslandsmeistari í […]

Uppskeruhátíð GSÍ

Á laugardag fór fram Uppskeruhátíð GSÍ, en þá voru veittar viðurkenningar fyrir árangur úr helstu mótaröðunum.

Hér fyrir neðan má sjá þá sem fengu viðurkenningar fyrir stöðu sína á stigalistum mótaraðanna:

Áskorendamótaröðin 2011:

Strákar 14 ára og yngri:
1. Atli Már Grétarsson, Golfklúbbnum Keili
2. Sigurður Arnar Garðarsson, Golfklúbbi Kópavogs […]

Uppskeruhátíð barna og unglinga í GKG í kvöld kl. 18

Minnum á Uppskeruhátíð barna og unglinga í GKG í kvöld, þriðjudag, kl. 18 í Stjörnuheimilinu Ásgarði. Gerum ráð fyrir að ljúki milli 19:30-20.

Dagskráin er á þessa leið:

Verðlaun veitt fyrir besta heildarárangurinn í Svala- og Unglingamótaröð GKG. Einnig veitt þátttökuverðlaun fyrir Svalamótaröðina.

Veittar ýmsar viðurkenningar fyrir góðan árangur í sumar.

Að […]

Uppskeruhátíð barna og unglinga GKG lauk í gær

Í gær fór fram Uppskeruhátíð barna- og unglingastarfs GKG og lauk þarmeð formlega sumaræfingunum. Frábær mæting var líkt og undanfarin ár, en u.þ.b. 100 krakkar mættu í Stjörnuheimilið í Garðabæ og allmargir foreldrar einnig. Frábær þátttaka á æfingum var í sumar og hefur þátttaka tvöfaldast á þremur […]

Go to Top