VIÐ ERUM ÍSLANDSMEISTARAR!

A sveit stúlkna GKG í flokki 12-18 ára sigraði í kvöld sveitakeppni unglinga á glæsilegan hátt. Sveit okkar skipuðu þær Erna Valdís Ívarsdóttir, Eygló Myrra Óskarsdóttir, Ingunn Gunnarsdóttir, Jóhanna Grétarsdóttir og Þórunn Día Óskarsdóttir og liðsstjóri þeirra var Ragnheiður Sigurðardóttir sem stýrði sveit sinni af mikill röggsemi. Stelpurnar spiluðu samtals […]

By |22.07.2007|Categories: Fréttir af unglingastarfi|

Barnamótaröð GKG – NÝTT

Unglinganefnd GKG hefur ákveðið að halda í fyrsta skipti barnamótaröð í sumar. Mótin eru ætluð börnum 12 ára og yngri (fæddum 95 og síðar) og eru annað hvort með enga eða hámarksforgjöf. Mótin fara fram á 9.holu vellinum okkar, Mýrinni, og verða 3 talsins í […]

By |06.07.2007|Categories: Fréttir af unglingastarfi|

Úrslit Niðjamótsins

Niðjamót GKG fór fram laugardaginn 16. júní og gekk mjög vel. Tveir voru saman í liði og annar var afkomandi hins. Veður hefði getað verið betra, austan strekkingur allan tímann en þurrt allt mótið.
Leikin var punktakeppni. Leikfyrirkomulag var Greensome þ.e. báðir slá af teig […]

By |17.06.2007|Categories: Fréttir af unglingastarfi|

Breytt fyrirkomulag á sumaræfingum barna og unglinga GKG sumarið 2007

Ákveðið hefur verið að breyta fyrirkomulagi æfinga barna og unglinga frá því sem verið hefur undanfarin sumar. Breytingunum er ætlað að leyfa öllum félagsmönnum fæddum á árunum ´89-´99 að njóta leiðsagnar þjálfara GKG, Úlfars Jónssonar, Derricks Moore og Haraldar Þórðarsonar. Jafnframt verður haldið í kosti fóstrakerfisins, sem flestir krakkanna hafa […]

By |05.05.2007|Categories: Fréttir af unglingastarfi|

Pistill frá formanni unglinganefndar eftir Spánarferð

Vaskur hópur GKG-inga, alls 43 kylfingar á aldrinum frá 5 upp í 72 ára, fór saman í æfingaferð til Spánar þann 28. mars - 5. apríl sl. Kjarninn úr hópnum var afrekskylfingar úr klúbbnum, alls sautján og tólf þeirra enn með keppnisrétt á unglingamótaröð GSÍ. Hinir 5 eru lítt eldri. Með í för voru síðan aðalþjálfararnir tveir, Úlfar Jónsson og Derrick Moore (eða Dáðríkur hinn meiri eins og ástsæll fréttaritari RÚV á Spáni kysi ugglaust að kalla hann). Þá var fjöldi foreldra og firnari áa og annarra fylgifiska úr GKG með í för.

Nánar tilgreint var farið til Costa Ballena, sem mun útleggjast Hvalaströndin þýtt yfir á ástkæra ylhýra. Ströndin sú tilheyrir syðri Atlantshafsströnd Spánar og er nokkurn veginn miðja vegu á milli landamæra Spánar við Portúgal og Gíbraltar. Gist var á hóteli sem kallað er Barceló og er fjögurra stjarna. Ekki væsti því um nokkurn mann.

By |14.04.2007|Categories: Fréttir af unglingastarfi|

Birgir Leifur miðlar af reynslu sinni

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, ætlar að miðla af reynslu sinni í skála GKG laugardaginn 14.apríl kl.12-13. Hann mun lýsa reynslu sinni af atvinnumennsku og fleiru sem tengist ferli hans og jafnframt svara spurningum gesta.

Öllum börnum og unglingum sem æft hafa með GKG í […]

By |12.04.2007|Categories: Fréttir af unglingastarfi|
Go to Top