Þriðja og síðasta mótið í barnamótaröð GKG fór fram í dag. Alls spiluðu 24 krakkar að þessu sinni, 21 strákur og 3 stelpur. Sigurvegarar í barnamótaröð GKG 2997 voru þau Hinrik Þráinn Örnólfsson í strákaflokki og Gunnhildur Krisjtánsdóttir í stúlknaflokki. Til þess að skoða úrslit mótsins í dag sem og lokastöðuna í sumar smellið á "Nánar ..." hér að neðan. Lokastaðan er reiknuð út árangri í tveimur bestu mótunum. Einnig er rétt að benda á að þegar höggin eru reiknuð þá er að hámarki talið 8 högg fyrir par 3 holu, 9 á par 4 og 10 á par 5 holu.
Við óskum sigurvegurunum að sjálfsögðu til hamingju með árangurinn og öllum keppendunum þökkum við kærlega fyrir þátttökuna og vonast til þess að sjá þau öll aftur á næstu mótaröð. Tímasetning vegna verðalaunaafhendingar verður tilkynnt innan skamms.